
Framsækin sárameðferð fyrir opin sár og bruna.
Stratamed hentar vel á opið sár, meðal annars eftir skurðaðgerð. Einnig á hruflaða húð, á húð eftir lasermeðferð og á 1. og 2. stigs brunasár.
Gelið myndar rakagefandi hlífðarlag sem hleypir súrefni í gegn, verndar gegn utanaðkomandi efnum og er bakteríuhamlandi. Það er græðandi, fyrirbyggjandi við óeðlilegri öramyndun og dregur úr kláða, sviða og óþægindum.
Stratamed er fáanlegt í apótekum án lyfseðils.







